Flókastaðir í fljótshlíð , 861 Hvolsvöllur
69.000.000 Kr.
Lóð/ Jörð
0 herb.
65535 m2
69.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
101.900.000
Fasteignamat
32.626.000

Um er að ræða 40% eignarhluta, í óskiptri sameign, í jörðinni Flókastöðum í Fljótshlíð, Rangárþingi eystra Fnr. 219-3635, lnr. 164009, póstnúmer 816 Hvolsvöllur

Flókastaðir eru lögbýli staðsett í afar fallegri sveit. Jörðin er á frábærum útsýnisstað í Fljótshlíðinni. Akstursfjarlægð frá Hvolsvelli er um það bil átta mínútur. Á jörðinni er eldri húsakostur, sem segja má að sé allur barn síns tíma.
Landstærð jaðarinnar í heild er talin vera um 125 hektarar, þar af ræktað land samkvæmt þjóðskrá um 35 hektarar. 
Jörðin er án bústofns véla og án framleiðsluréttar.

Flókastaðir er í eigu 16 aðila og hyggjast 8 aðilar selja eignarhluta sinn í óskiptri sameign Flókastaða. Eignarhald Flókastaða er bundin nokkurri kvöð en þeir aðilar sem ekki hafa eignarhlut sinn á sölu hér eru bundnir þeirri kvöð að geta ekki selt, gefið eða afsalað eignarhluta sínum í jörðinni nema til skyldfólks síns. Umbjóðendur okkar eru þó ekki bundnir slíkri kvöð og hafa því tekið þá ákvörðun að selja hluta sinn í jörðinni.
 
Eignarhlutur umbjóðenda okkar er þó bundin þeirri kvöð að núverandi eigendur eiga forkaupsrétt á þann eignarhluta sem til sölu er og hafa því kost á að ganga inn í þau tilboð sem kunna að berast og verða samþykkt.
 
Tilvalið tækifæri fyrir aðila sem vill eignast hluta í flottri jörð í Rangarárþingi Eystra.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.