Um er að ræða Sumarhús í landi Úthlíðar í Biskupstungum, birt stærð 80,9m
2 bjálkahús frá Kanada með millilofti, álgluggum og lituðu bárujárni á þaki, byggt árið 2008.
Gengið er inn á vesturhlið hússins.
Komið er inn í hol þaðan sem gengið er í öll rými hæðarinnar.
Stigi upp á risloft sem er með töluverðri lofthæð og góðum gluggum.
Tvö svefnherbergi með skápum og þá er mögulegt að nýta risið sem svefnloft.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu rými. Í eldhúsi er viðarinnrétting, með keramikhelluborði og bakaraofni.
Úr stofu er útgengt út á pall og lóðin nýtur sólar frá morgni til kvölds.
Baðherbergi með glugga, innréttingu, sturtuklefa og upphengdu salerni.
Neðri hæðin er parketlögð að mestu en flísar eru á baðherbergis- og eldhúsgólfi.
Lóðin er 5.242 fm leigulóð.
Útigeymsla er á vesturhlið hússins. Gott bílastæði er við húsið
Innbú fylgir samkvæmt nánara samkomulagi, annað en persónulegir munir.
Úthlíð í Biskupstungum er u.þ.b. klst. akstur frá Reykjavík, á svæðinu er 9 holu golfvöllur og stutt á fleiri golfvelli í nágrenninu t.d. á Geysi og Flúðum. Sumarbústaðarfélag á svæðinu og er svæðið lokað fyrir almenna umferð með símahliðum. Að auki er veitingastaður og tjaldsvæði á svæðinu. Örstutt í ósnorta og margar gönguleiðir í boði.
Leiðarlýsing: Ekið að hliði nr. 2 til hægri. Guðjónsgata á vinstri hönd, aka hana út í enda þá til hægri. Bústaðurinn er efsti bústaður á vinstri hönd. Sjá kort af svæðinu hér: https://www.uthlid.is/kort-af-svaedinu Sjá hér: https://www.uthlid.is
Lóð nr. 4 er í eigu sama aðila, á henni er steypt plata með hitalögn. Möguleiki að fá hana keypta.
Nánari upplýsingar veita Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali [email protected] - s: 416 2220 - gsm: 894 3209 eða Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til löggildingar fasteignasala [email protected] s: 416-2223, gsm: 695 6134